|
She has a Voice ! Hugleiðingar um lífið og tilveruna eftir því sem ég nenni að færa það inn. |
|
Færslur: 2007 Apríl20.04.2007 09:27Gleðilegt sumarEinn morgun vakna ég snemma
Ég anda að mér vorinu
Ég horfi á flauelsmjúka skugga Sem fagna sólarkomunni Ég stend á skýi
Í algleymi
Ég stend á skýi
Í alheimi
Og ég mun opna mitt hjarta
Og baða mig í dögginni
Og rísa upp, sem nýr maður
Ó, ég hef fundið sjálfan mig
Gleðilegt sumar !
Tónleikarnir á miðvikudagskvöldinu með SSSÓL voru tær snilld. Lagavalið meiriháttar og ekkert nema snilldarhljóðfæraleikarar skipuðu bandið..Helgi var að sjálfsögðu ÆÐI.. :O)Ég stend á skýji, Halló ég Elskan þig, Svo marga daga , Lof mér að lifa, Nóttin hún er yndisleg, Geta Pabbar ekki grátið, Síðan hittumst við aftur.. og fleiri og fleiri og fleiri.. í restina sagði Helgi.. viljið þið ekki standa aðeins upp.. og eins og við manninn mælt stóð allur skarinn upp og stóð í raun það sem eftir var tónleikanna :O) Þeir voru klappaðir 3 upp og í restina voru aðeins 15. mín í næstu tónleika og því urðum við að fara úr salnum.
Á einum tímapunkti datt ég aðeins út.. .. .. allt í einu var ég 17-18 ára, í Miðgarði, fremst við sviðið með vodka í sprite og Helgi var að trylla líðinn.. Vá.. Flashback.. þess má geta að þetta kvöld gisti ég á tjaldsvæðinu í Varmahlíð í góðra vina hópi og á sunnudeginum var farið í Rafting niður Jökulsá.. Snilldar skemmtun.. frábær helgi..
![]() Takk fyrir mig Helgi og félagar !
Eina sem fór frekar mikið fyrir brjóstið á mér á þessum tónleikum, sem voru haldnir í Borgarleikhúsinu, var fylleríið.. .. ég er nú engin bindindismanneskja, en common. Það var selt í sæti OK. Ekkert Hlé.. OK.. þannig að maður þurfti endalaust að vera að standa upp fyrir fólki sem var endalaust að fara fram og ná sér í meira áfengi.. og í raun voru miðar upp um alla vegi þar sem stóð að Öll drykkjarföng væru bönnuð í salnum.. greinilega ekki nógu ströng gæsla.. svo voru sessunautar mínir.. sem voru mægður og vinkona, orðnar blindfullar, farnar á trúnó í miðju lagi og í eitt skiptið þegar allir stóðu og sungu með, fannst henni ógeðslega töff að reyna að standa uppí sætinu og reif í jakkann minn til stuðnings.. ég var fljót að rífa hendina á henni af jakkanum og hún flaug niður á gólf.. ég er sko engin lifandi stuðnings súla tíkin þín !
![]() Heyrðu... Góða helgi kæri vinur og þú veist.. mér finnst alltaf gaman að heyra í þér :O) ![]() 16.04.2007 09:59BulleríbullMikið er nú yndislegt að þessi vika innihaldi frídag líkt og sú síðasta.. mæli með því að hér eftir verði vinnuvikan aðeins 4 dagar og frídagarnir 3 í hverri viku :O) Gerir allt svo miklu auðveldara .
Helgin var róleg og yndisleg.
Massinn skellti sér í Bíó með Piparsveininum á föstudagskvöldinu og þar af leiðandi gátum við Mæðgurnar átt stelpukvöld. Tókum myndina The Holyday og skemmtum okkur stórkostlega. Á laugardaginn skellti ég mér í ræktina og hitti svo BAK - klúbbinn og að sjálfsögðu fékk litla prinsessan hún Ásdís Eva að fylgja með og stóð hún sig sko vel í slúðrinu.. brosti á réttum stöðum og vældi ekki baun. Góður kandídat í slúðurklúbba framtíðarinnar.. Gstrengurinn var leystur út með gjöf frá Victoria secret og ilmar vel að vanda. Um daginn skelltum við Massinn okkur í 3 bíó þar sem Prinsessan og besta vinkonan vildu fara. Þær fóru á MR. Beans Holyday en við Massinn á Perfect Stranger.. hefðum betur farið á MR. Bean þar sem þetta var hrikalega léleg ræma . Mikið var pælt í mótorhjólakaupum þessa helgina.. massinn fær alltaf fiðring í rasskinnarnar þegar hlýnar í veðri... og hver veit.. aldrei að vita nema draumurinn rætist.. ef rétt hjól með réttum afborgunum birtist .. Vikan framundan er þétt setin.. á þriðjudag er prinsessan með danssýningu í Borgarleikhúsinu og um kvöldið er klobbahittingur hjá Valborgu ofurskutlu.. á miðvikudag eru það svo Afmælistónleikar SSSÓL í Borgarleikhúsinu og ef Helgi kallar út í salinn " ERu ekki allir sexy ! ? " Þá ætlar Gstrengurinn svo sannarlega að standa upp og öskra ÓJÚ !!
Á Föstudag er það svo dinner vegna vinnunar og á laugardag er það SYSTKINADINNER í Veghúsum.. þá hittumst við systkinin ásamt mökum og hver og eitt sér um Forrétt, Aðalrrétt og Eftirrétt og svo er bara skálað og skemmt sér vel.. ,, Gstrengurinn skálaði víst heldur til mikið síðast.. og heimtaði að Massinn pantaði leigubíl til að koma okkur heim.. Massinn hló nú ekki.. enda ekki bragðað dropa í næstum 6 ár og ávallt akandi.. og vakandi.. :O) ( lítið af birtingarhæfum myndum frá því kvöldi síðast þar sem Gstrengurinn var ekki myndhæfur.)
10.04.2007 20:36Hjúkk.. slapp við mánudag!Komið þið nú öll sæl og blessuð !
Þriðjudagurinn heilsaði kl. 5:50 í morgun með skítakulda en sól á lofti.
Vá hvað páskarnir voru yndislegir !
![]() Húsafell (http://husafell.is/) er hreinilega ævintýralegur staður - veðrið var flott alla dagana , sól á fimmtudag og föstudag, og svo bara flott veður á laugardag og sunnudag..fórum í göngutúra alla dagana enda rosalega fallegt þarna. Grilluðum og lágum í pottinum og slökuðum á..
því miður náðist ekkert nema gamla góða RÚV þarna í bústaðnum þrátt fyrir mörg símtöl til 365° .. og Vá hvað ég held að liðið sem glápir bara á RÚV alla daga sé hrikalega menningarlegt.. framboðið á afþreyingarefni var nú ekki upp á marga fiska, skemmtilegt frá því að segja að eitt kvöldið hófst á franskri mynd, næst tók við spænsk og endað á danskri.. Vóv.. thank u very nice. En sem betur fer var nú opið í Húsafellsskálanum og eigandinn þar aumkaði sig yfir sumarbústaðaliðinu og sýndi úrslitaþátt X-factors um kvöldið. Fínt að skella sér þangað og sötra kaldan öl. Úrslitin fóru að sjálfsögðu eins og Gstrengurinn hafði spáð frá upphafi, hinn Færeyski Jogvan kom , sá og sigraði. ![]() Á laugardag var pleisið aðeins sjænað til enda merkir gestir á leiðinni ! Gamla settið var komið til landins, búið að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Kanarí með hinum krumpudýrunum og að sjálfsögðu voru þau langflottust ! Þau mættu í hús um kaffileytið með fulla poka af mat og byrjuðu að sjálfsögðu á því að bleyta sig í pottinum. Gerðum reyndar grín að því að þessi pottur hefði alveg mátt vera stærri, svo var þetta svona pottur af gamla skólanum, settur tappi í og svona.. semsagt gaman saman í baði. Grilluðum lambalæri sem rann ljúft niður og spiluðum kana og allan andskotann. Á Páskadag var skellt sér í göngutúr A la Kristján leiðsögumaður.. VóV.. ekki þýddi að þræða göngustíga.. ónei.. heldur var farið í gegnum skóga, meðfram árbökkum, upp kletta og ég veit ekki hvað og hvað.. Gstrengurinn söng lag Survivor á meðan á göngunni stóð , og sýndi snilldartakta sem enduðu nærri því útí á !. Um kvöldið var svo veisla ala pabbi kokkur og sú gamla gjörsamlega dó eftir matinn og vaknaði ekki fyrr en að hádegi daginn eftir.
Nú er það bara hversdagsleikinn framundan, rólegheit og ræktin. 02.04.2007 09:05GLEÐILEGA PÁSKA !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!![]() KEMST ÞVÍ MIÐUR EKKI Á ÞESSA SNILLD - EN MÆLI HIKLAUST MEÐ ÞVÍ AÐ ÞEIR SEM VERÐA Á MYGLÓ UM PÁSKANA SKELLI SÉR !
Flettingar í dag: 4 Gestir í dag: 2 Flettingar í gær: 7 Gestir í gær: 3 Samtals flettingar: 56875 Samtals gestir: 26132 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 12:25:54 |
Eldra efni Um mig Nafn: GstrengurTölvupóstfang: skarbinn@hotmail.comAfmælisdagur: JúníStaðsetning: Reykjavík, IcelandUm: fædd í tvíburamerkinu og samsvara því vel. U never know what u are gonna get !Tenglar |